26. sep. 2022
Tveir brasilískir leikmenn til liðs við Hörð frá Sorocabo
Hörður hefur fengið miðjumanninn Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos og markvörðinn Emannuel Agusto Evangelista, báða frá Sorocabo í Brasilíu.

Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos, 24 ára miðjumaður, er genginn til liðs við Hörð frá Sorocabo eftir að félagið kláraði úrslitakeppnina síðustu daga í Brasilíu. Hann er sagður einstaklega lunkinn miðjumaður, eldfljótur og góður skotmaður. Félagið bindur vonir við að hann muni aðstoða strax í baráttunni í Olís deild karla.
Emannuel Agusto Evangelista kom til félagsins fyrir 2 vikum og er nú kominn með leikheimild. Hann er 21 árs markvörður og kemur einnig frá Sorocabo, sem er í efstu deildinni í Brasilíu. Hann er stór og stæðilegur markvörður sem hefur spilað fyrir yngri landslið Brasilíu undanfarin ár.
Félagið hlakkar til að sjá þá spreyta sig í treyjum Harðar í vetur.
