22. sep. 2022

Hörður tapaði 27-31 fyrir KA á heimavelli

Hörður tapaði 27-31 fyrir gestunum í KA í kvöld, og Dagur Gautason var valinn maður leiksins.

Lokatölur í leik Harðar og KA í kvöld urðu 27-31, KA í vil. Félagið þakkar öllum sem komu á leikinn. Stemmingin var að þeirra sögn geggjuð og þeir telja sig vera með bestu stuðningsmenn á landinu. KA fær þakkir fyrir komuna og góða ferð heim.

Markahæstir hjá Herði voru Mikil Amilibia með 6 mörk, Jón Ómar Gíslason með 6 og Suguru Hikawa með 3. Hjá KA skoruðu Einar Rafn Eiðsson 9, Dagur Gautason 8 og Skarphéðinn Ívar Einarsson 4. Í markvörslu hjá Herði voru Stefán Freyr Jónsson með 6/19 og Rolands Lebedevs með 6/23, en hjá KA Nicholas Adam Satchwell með 18/43 og Bruno Bernat með 2/3.

Dagur Gautason var valinn maður leiksins og fær gjafapoka með glaðningi frá Hermosa.