31. okt. 2024

Víðir Garði gefur leikinn gegn Herði – enginn leikur á morgun

Víðir Garði hefur tilkynnt Herði og HSÍ að liðið gefi leikinn gegn Herði, og því fer enginn leikur fram á morgun.

Víðir Garði hefur tilkynnt Herði og Handknattleikssambandi Íslands að liðið muni gefa leikinn gegn Herði. Vegna þessa verður enginn leikur á morgun, og Hörður biður stuðningsmenn velvirðingar á því.

Hörður óskar Víði góðs gengis í vetur í 2. deildinni. Félagið hlakkar til að mæta með lið Harðar 2 til Víðis í Garðinn í janúar næstkomandi.