26. nóv. 2024
Leik HK2 á Ísafirði aflýst – HK2 gefur leikinn
HK2 ákvað að mæta ekki í leik sinn á Ísafirði og hefur tilkynnt að liðið gefi leikinn; Harðverjar lýsa miklum vonbrigðum.

Leikur HK2 og Harðar á Ísafirði hefur verið aflýst, þar sem HK2 ákvað að mæta ekki til leiks. Liðið hefur nú tilkynnt að það gefi leikinn.
Harðverjar segjast verða fyrir miklum vonbrigðum með að lið frá Reykjavík sjái sér ekki fært að mæta, ekki síst vegna þess að þetta er í annað skiptið sem leiknum er frestað eða aflýst með nokkurra klukkustunda fyrirvara. Þeir segja þetta sýna hversu erfitt það er fyrir lið úr Reykjavík að mæta til leiks á landsbyggðinni, en að Hörður hafi mætt í alla sína leiki.
Harðverjar vonast til þess að HSÍ taki fast á málum sem þessum.