14. sep. 2022
Hörður hefur leik gegn Val á föstudag, fyrsti heimaleikur gegn KA
Fyrsti leikur Harðar á tímabilinu er gegn Val á Hlíðarenda á föstudaginn og fyrsti heimaleikurinn er gegn KA á fimmtudaginn í næstu viku.

Hörður leikur fyrsta leik sinn á tímabilinu gegn Val á föstudaginn á Hlíðarenda. Leikurinn verður sýndur á ValurTV á YouTube.
Fyrsti heimaleikur liðsins er gegn norðanmönnum í KA á fimmtudaginn í næstu viku.
Félagið hlakkar til að sjá sem flesta í vetur.