16. sep. 2022

Fyrsti leikur Harðar í efstu deild í kvöld gegn Val

Hörður leikur í kvöld sinn fyrsta leik í efstu deild í handknattleik gegn Val í Origo höllinni á Hlíðarenda klukkan 20:15.

Fyrsti leikur Harðar í efstu deild í handknattleik er í kvöld. Liðið mætir Val á Hlíðarenda í Origo höllinni og hefst leikurinn klukkan 20:15. Strákarnir keyrðu suður í gær og eru því vel hvíldir fyrir leikinn.

Félagið hvetur alla Harðverja, nær og fjær, sem gætu komist í Origo höllina að mæta og styðja liðið. Miðasala er á stubbur.app.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta horft á hann á spiideo rás Vals fyrir 5 evrur. Einnig verður hægt að fylgjast með stöðunni í beinni á HB statz.