28. sep. 2022
Hörður fær tvo brasilíska leikmenn, Guilherme og Zeca
Handknattleiksdeild Harðar býður velkomna brasilísku leikmennina Guilherme Carmignoli De Andrade og Jose Esteves Lopes Neto, sem kallaður er Zeca.

Guilherme Carmignoli De Andrade er 21 árs brasilísk skytta sem er genginn til liðs við Hörð frá Nacional Handebol í Brasilíu. Hann spilar jafnt sem skytta vinstra megin en einnig sem miðjumaður og vinstri hornamaður eftir þörfum. Guilherme er fastamaður í brasilíska U21 landsliðinu og hefur einnig spilað fyrir U23 landslið Brasilíu. Hann hefur skrifað undir 2 ára samning.
Jose Esteves Lopes Neto er örvhentur leikmaður í U23 landsliði Brasilíu. Hann spilar nú með Corinthians Guarulhos - VEGUS og lauk móti með liðinu í gær. Liðið hafnaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik gegn Nacional.
Hörður hlakkar til að sjá þá leika í Harðartreyjunni í vetur.
