19. okt. 2022
Hörður tapaði 32-35 fyrir Selfossi á heimavelli
Hörður tapaði 32-35 fyrir sterku liði Selfoss í gærkvöldi. Mikel Amilibia var valinn maður leiksins.

Hörður tapaði 32-35 fyrir sterku liði Selfoss í gærkvöldi. Markahæstir hjá Herði voru Suguru Hikawa með 7 mörk, Jón Ómar með 6 og Mikel Amilibia með 5. Hjá Selfossi skoraði Einar Sverrisson 13 mörk og Guðmundur Hólmar 5.
Mikel Amilibia var valinn maður leiksins og fær gjafapoka með glaðningi frá Hermosa.
Félagið þakkar öllum sem komu á leikinn og sjálfboðaliðunum sem gera heimaleikina að veruleika. Selfyssingum er þakkað fyrir komuna vestur, og vonast er til að ferðin heim hafi gengið vel.