6. okt. 2022

Bleikar treyjur Harðar í sölu í október

Hægt er að panta bleika treyju Harðar með skilaboðum og kaupa á heimaleikjum 8. og 30. október; treyjur fást í barna- og fullorðinsstærðum.

Formleg sala á bleikum treyjum í tilefni af Bleikum október er hafin. Hægt er að panta treyju með því að senda skilaboð á Facebook eða Instagram eða með tölvupósti. Einnig verður hægt að kaupa treyjur á báðum heimaleikjum Harðar í október, 8 október gegn Selfossi og 30 október gegn Aftureldingu. Til eru barnastærðirnar 118-128 og 130-142 og fullorðinsstærðirnar S, M, L, XL og XXL.

Hægt verður að nálgast treyjurnar á heimaleikjunum tveimur. Þeir sem búa á Ísafirði eða í nágrenni geta einnig sótt þær á skrifstofu Sigurvonar alla virka daga milli 09:00 og 16:00, eða í íþróttamiðstöðvum á Þingeyri, Suðureyri, Flateyri eða Bolungarvík á opnunartíma þeirra. Gerð verður vikuleg sending til íþróttamiðstöðvanna eftir pöntunum og óskum. Þeir sem búa fyrir sunnan geta sótt treyjurnar á útileikjum Harðar í október, annars verða þær sendar með pósti, eins og til þeirra sem búa annars staðar á landinu.

Hægt er að greiða með korti eða millifærslu. Þeir sem fá treyjurnar sendar eða sækja þær í íþróttamiðstöðvar þurfa að greiða fyrirfram með millifærslu og senda kvittun fyrir greiðslunni. Annars er hægt að greiða með korti á heimaleikjum Harðar eða þegar treyjan er sótt.