22. okt. 2022
Hörður mætir Stjörnunni í TM Höllinni klukkan 16:00
Karlalið Harðar mætir Stjörnunni í dag klukkan 16:00 í TM Höllinni í Garðabæ og verður leikurinn sýndur á YouTube rás Stjörnunnar.

Strákarnir okkar mæta Stjörnunni í dag í TM Höllinni í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 16:00. Félagið hvetur alla Harðverja nær og fjær sem geta gert sér leið upp í Garðabæ að mæta og styðja liðið.
Þeir sem komast ekki á leikinn geta fylgst með honum á YouTube rás Stjörnunnar, Stjarnan Handbolti TV.