2. okt. 2022
Fjórði leikur Harðar í Olís-deildinni í dag
Fjórði leikur karlaliðs Harðar í Olís-deildinni fer fram í dag klukkan 16:00 og er sýndur á ÍBV TV á YouTube-rás ÍBV.

Karlalið Harðar leikur í dag fjórða leik sinn í Olís-deildinni. Leikurinn átti upphaflega að fara fram 9. september en var frestað til dagsins í dag vegna evrópukeppni hjá ÍBV.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er sýndur á YouTube-rás ÍBV, á ÍBV TV.
Félagið sendir stuðningskveðjuna: Ein heild, eitt lið, HÖRÐUR!