13. nóv. 2022
Hörður tapaði naumlega fyrir Fram, 31-32
Hörður tapaði 31-32 fyrir Fram í heimaleik og var Endjis Kusners markahæstur í liði Harðar með 7 mörk.

Hörður tapaði naumlega fyrir Fram, 31-32, í heimaleik. Endjis Kusners var markahæstur í liði Harðar með 7 mörk og Jón Ómar skoraði 6. Hjá Fram skoraði Ívar Logi 9 mörk og Kjartan Þór 5.
Endjis Kusners var valinn maður leiksins og fær gjafapoka með glaðningi frá Hermosa.
Félagið þakkar öllum þeim sem komu á leikinn og sjálfboðaliðum sem gera heimaleikina að veruleika. Fram er þakkað fyrir komuna vestur og óskað góðrar ferðar heim.