2. sep. 2022
Olís-deildin 2022/23 hefst eftir tvær vikur hjá Herði
Hörður mætir Val á Hlíðarenda 16. september klukkan 20:15 og tekur á móti KA í fyrsta heimaleik fimmtudaginn 22. september klukkan 18:00.

Tímabilið í Olís-deildinni 2022/23 fer að hefjast og eru nú sléttar tvær vikur í fyrsta leik Harðar.
Fyrsti leikur liðsins er gegn Val á Hlíðarenda í Reykjavík þann 16. september klukkan 20:15. Eftir þann leik er fyrsti heimaleikur Harðar gegn norðanmönnum í KA, fimmtudaginn 22. september klukkan 18:00.
Félagið hlakkar til að sjá stuðningsmenn á komandi tímabili.