30. okt. 2022

Hörður tekur á móti Aftureldingu í fjórða heimaleik tímabilsins

Fjórði heimaleikur tímabilsins hjá Herði er í dag gegn Aftureldingu klukkan 16:00, frítt er inn og leikurinn verður sýndur á YouTube rás Harðar.

Fjórði heimaleikur tímabilsins er í dag, þegar Afturelding kemur í heimsókn vestur. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er frítt inn í boði Formáli ehf. Þeir sem komast ekki á leikinn geta horft á hann án endurgjalds á YouTube rás Harðar.

Fjórði flokkur keppir einnig gegn Aftureldingu í dag, klukkan 14:00, og sá leikur verður sömuleiðis sýndur á YouTube rás félagsins. Allir eru hvattir til að mæta á báða leikina.

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki hægt að vera með grill á leikjunum í dag, en sjoppan og VIP rýmið verða á sínum stað. Þeir sem vilja styðja við útsendingarnar geta keypt einn kaffibolla á buymeacoffee.com/hordur og rennur allur sá peningur til yngri flokka félagsins.