29. sep. 2022

Hörður mætir ÍR í Skógarseli í kvöld klukkan 19:40

Fyrsti nýliðaslagur tímabilsins hefst klukkan 19:40 í kvöld í nýju húsi ÍR-inga í Skógarselinu og er hann sýndur á Stöð 2 Sport.

Í kvöld er komið að fyrsta nýliðaslag tímabilsins. Leikurinn hefst klukkan 19:40 í nýju húsi ÍR-inga í Skógarselinu í Breiðholti.

Miðasala fer fram í gegnum stubbur.app. Harðverjar í nær og fjær, sem geta komist upp í Breiðholt, eru hvattir til að mæta og styðja strákana í þessum mikilvæga leik.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta fylgst með honum á Stöð 2 Sport.