8. ágú. 2024

Kenya Kasahara framlengir samning við Hörð um tvö ár

Japanski línumaðurinn Kenya Kasahara, kallaður „Kasa“, verður hjá Herði í tvö ár í viðbót.

Japanski línumaðurinn Kenya Kasahara, sem er kallaður „Kasa“, hefur framlengt samning sinn við Hörð um 2 ár. Í færslu félagsins segir að hann hafi verið mikilvægur hlekkur í liðinu.

Félagið segist vera spennt að sjá hann spila á vellinum aftur. Þar kemur einnig fram að Kasahara hafi tekið þátt á Ólympíuleikunum í París og sent félaginu nokkrar myndir þaðan. Félagið segist vera stolt af honum.