18. mars 2016

Þrír handboltaleikir á Torfnesi um helgina

Á Torfnesi fara fram þrír leikir um helgina: tveir í meistaraflokki gegn Vængjum Júpíters á laugardag og einn í 3. flokki karla gegn ÍR á sunnudag.

Þrír leikir fara fram á Torfnesi um helgina. Á laugardaginn eru tveir leikir í meistaraflokki og eru þeir báðir gegn Vængjum Júpíters, liði úr Grafarvogi. Fyrri leikurinn hefst kl. 15:00 og sá seinni kl. 17:30.

Á sunnudaginn er leikur í 3. flokki karla þegar ÍR-ingar koma í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 15:00.

Hörður hvetur alla til að fjölmenna og hvetja liðið til sigurs.