11. mars 2016

Fjórir leikir hjá Herði um helgina

3. flokkur karla leikur tvo leiki við Þór á Akureyri og meistaraflokkur karla tvo leiki við Míluna á Torfnesi um helgina.

3. flokkur karla hjá Handknattleiksdeild Harðar fer norður á Akureyri í dag og spilar tvo leiki við Þór á laugardag og sunnudag. Leikirnir eru kl. 14:00 á laugardaginn og kl. 13:00 á sunnudaginn í Íþróttahúsi Síðuskóla.

Meistaraflokkur karla spilar tvo leiki á Torfnesi um helgina við lið Mílunnar frá Selfossi. Fyrri leikurinn er kl. 17:00 á laugardaginn og sá seinni kl. 13:00 á sunnudaginn.