7. mars 2016
Lið Harðar vöktu athygli á mótum í Reykjavík
Lið Harðar í 6. og 5. flokki vöktu athygli á mótum í Reykjavík um helgina; 6. flokkur karla vann alla fjóra leiki sína og sigraði í sinni deild.
Lið Harðar vöktu þónokkra athygli á mótum í 6. flokki og 5. flokki í Reykjavík um helgina. Búningar liðanna fengu mikla og jákvæða athygli og liðin buðu upp á góða spilamennsku.
6. flokkur karla sigraði alla sína fjóra leiki og vann sína deild. 5. flokkur karla tapaði úrslitaleik um sigur í sinni deild.
Þjálfarar annarra liða létu ummæli falla um lið Harðar. Um 6. flokk sögðu þeir: "Hrikalega vel spilandi lið", "Mikill bolti í þessum strákum" og "Þeir gætu hugsanlega bitið eitthvað frá sér í efstu deildinni (6 bestu lið landsins)". Um 5. flokk sögðu þeir: "Hörkustrákar", "Algjört run and gun lið, ekkert smá fljótir upp og hraður leikstíll" og "Enginn farþegi í liðinu, allir skiluðu miklu framlagi til leiksins og liðsins".