27. feb. 2016
Hörður tapaði 32-35 fyrir Fjölni2 í 3. flokki karla
Hörður tapaði 32-35 fyrir Fjölni2 í 3. flokki karla eftir jafnan leik, þar sem staðan í hálfleik var 14-16 fyrir Fjölni.

Hörður og Fjölnir2 mættust í 3. flokki karla. Mikið jafnræði var með liðunum til að byrja með en Fjölnismenn voru alltaf aðeins á undan. Í hálfleik var staðan 14-16 fyrir Fjölni.
Í seinni hálfleik náði Fjölnir mest 7 marka forskoti. Hörður minnkaði muninn í 1 mark en komst ekki nær. Lokatölur urðu 32-35 fyrir Fjölni.
Jón Ómar Gíslason var markahæstur með 15 mörk. Jens Ingvar Gíslason sneri aftur á völlinn og spilaði sinn fyrsta leik í meira en 1 ár. Hann varði 8 skot. Strákarnir börðust og lögðu sig alla fram og liðsheildin var fín. Liðið er í framför og strákarnir þurfa bara að halda áfram veginn.