22. feb. 2016

Leik 3. flokks gegn HKR frestað vegna veðurs og færðar

Leiknum við HKR í 3. flokki var frestað eftir að HKR þurftu að snúa við á leiðinni vegna veðurs og færðar; næsti leikur er við Fjölni á laugardaginn kl. 10:30 á Torfnesi.

Leiknum við HKR í 3. flokki, sem átti að fara fram á sunnudaginn var, var frestað. HKR voru lagðir af stað og komnir áleiðis í Búðardal en þurftu að snúa við vegna veðurs og færðar.

Næsti leikur 3. flokks er við Fjölni á laugardaginn kl. 10:30 á Torfnesi.

Meistaraflokkur karla á síðan tvo leiki í höfuðborginni næstu helgi.