4. feb. 2016

Þjálfarar Harðar kynntu handbolta fyrir krökkum á Þingeyri

Þjálfarar Harðar kynntu handbolta fyrir krökkum í 4.-10. bekk á Þingeyri í morgun, þar sem þau tóku þátt í þrautum og spiluðu lítið mót.

Þjálfarar Harðar voru með kynningu á handbolta í morgun fyrir krakkana í 4.-10. bekk á Þingeyri. Krakkarnir spreyttu sig á léttum og skemmtilegum þrautum og spiluðu síðan lítið mót.

Að sögn félagsins er mikið af frambærilegum íþróttastrákum og stelpum á Þingeyri sem gaman væri að sjá reyna fyrir sér í handbolta.

Hörður minnir á að það er frítt að æfa hjá félaginu og að allir iðkendur fá gefins keppnisbúning. Upplýsingar um æfingatöflu er að finna á Facebook-síðu félagsins og á Facebook-hópum flokkanna.