28. jan. 2016

3. flokkur karla leikur við Hauka og Aftureldingu

3. flokkur karla fer eldsnemma næsta laugardagsmorgun til Reykjavíkur og spilar þar tvo leiki, við Hauka og Aftureldingu.

Eldsnemma næsta laugardagsmorgun fer 3. flokkur karla til Reykjavíkur og spilar þar 2 leiki.

Fyrri leikurinn er við lið Hauka í Íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 16:15 á laugardaginn. Sá seinni er við lið Aftureldingar í Mosfellsbænum kl. 11:00.

Allir Harðarmenn og Ísfirðingar sem búa í höfuðborginni eru hvattir til að koma á leikina og hvetja drengina áfram.