23. jan. 2016

Tveir frá Herði tilnefndir sem íþróttamaður Ísafjarðarbæjar

Hreinn Róbert Jónsson og Jens Ingvar Gíslason úr Handboltadeild Harðar eru tilnefndir, en valið verður tilkynnt sunnudaginn 24. janúar kl. 16 í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar verður útnefndur sunnudaginn 24. janúar. Tíu tilnefningar hafa borist frá íþróttafélögum bæjarins. Valið verður tilkynnt í hófi í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði kl. 16 á sunnudaginn.

Einnig verður tilkynnt um val á efnilegasta íþróttamanninum, en sex ungir íþróttamenn eru tilnefndir í þeim flokki.

Frá Handboltadeild Harðar er Hreinn Róbert Jónsson tilnefndur í flokki íþróttamanns Ísafjarðar og Jens Ingvar Gíslason í flokki efnilegasta íþróttamanns Ísafjarðar. Handboltadeildin óskar þeim til hamingju með tilnefningarnar.