8. des. 2015

Jólamót Harðar á Torfnesi fimmtudaginn 10. desember

Jólamót Harðar verður haldið á Torfnesi fimmtudaginn 10. desember frá kl. 4 til 6 og að því loknu verður pizzuveisla fyrir þátttakendur.

Jólamót Harðar verður haldið fimmtudaginn 10. desember frá kl. 4 til 6 á Torfnesi. Spilað verður mjúkboltamót á litlum völlum með blönduðum liðum úr öllum flokkum.

Slakað verður á klónni í kennslu- og þjálffræðum og verður léttleikinn og gleðin í fyrirrúmi. Jólaandinn mun einnig svífa yfir vötnum.

Eftir jólamótið verður efnt til pizzuveislu fyrir þátttakendur uppi í fundarsal.