27. nóv. 2015

Þjálfarar Harðar heimsóttu Grunnskóla Súðavíkur

Þjálfararnir Grétar og Davíð kynntu starfsemi Harðar og kenndu nemendum Grunnskóla Súðavíkur í íþróttasal skólans í morgun.

Þjálfarar Harðar, þeir Grétar og Davíð, fengu höfðinglegar móttökur frá bæði kennurum og nemendum Grunnskóla Súðavíkur í morgun. Þeir kynntu starfsemi Harðar og voru með kennslu inni í sal. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og sýndu lipra takta.

Að lokum var miðum með æfingatöflu dreift á alla. Forsvarsmenn Harðar telja mjög líklegt að nokkrir Súðvíkingar mæti á næstu æfingar félagsins.