22. nóv. 2015
Þrír frá Herði á úrtaksæfingum fyrir U14 ára landslið drengja
Um helgina fóru fram úrtaksæfingar í Reykjavík hjá drengjum fæddum 2002 og átti Hörður þar þrjá fulltrúa.
Um helgina fóru fram úrtaksæfingar í Reykjavík hjá drengjum fæddum 2002. Æfingarnar eru fyrir þá sem vilja komast í U14 ára landslið Íslands. Haldnar voru 2 æfingar á laugardegi og 2 æfingar á sunnudegi.
Hörður átti 3 fulltrúa á æfingunum: Guðmund Arnar Svavarsson (miðjumann), Helga Hrannar Guðmundsson (markmann) og Ólaf Tryggva Guðmundsson (skyttu). Félagið segir þá glæsilega og verðuga fulltrúa Harðar.
Drengirnir eru nú á heimleið eftir æfingarnar fjórar í borginni. Hjá félaginu hlakka menn til að heyra á næstu æfingu hvernig leikmönnunum gekk.