13. nóv. 2015
Mikið um að vera hjá flokkum Harðar um helgina
3. flokkur lék bikarleik við KA, 5. og 6. flokkur keppa í Reykjavík og yngstu flokkarnir og stúlknaflokkarnir æfa um helgina.

3. flokkur Harðar lék bikarleik við KA í kvöld. Lokatölur voru 18-43 gegn 1. deildarliði KA, en Hörður leikur í 3. deild.
Á morgun er æfing hjá yngstu flokkunum. Krakkar í 1.-2. bekk, strákar og stelpur, æfa kl. 9 á Austurvegi og vill félagið sjá sem flesta. 5. flokkur karla er að koma sér fyrir í gistingu í Gróttuheimilinu og leikur fjóra leiki snemma í fyrramálið. 6. flokkur heldur til Reykjavíkur á morgun og spilar fimm leiki á sunnudaginn.
Stúlknaflokkarnir eiga æfingu á sunnudaginn á Torfnesi kl. 13-14. Áfram Hörður.