2. nóv. 2015

HP vann Hörð 37-31 í Kórnum

Meistaraflokkur Harðar tapaði 37-31 fyrir HP í Kórnum á laugardaginn eftir að staðan í hálfleik var 21-17 fyrir HP.

Meistaraflokkur Harðar mætti liði HP í Kórnum á laugardaginn. Liðin voru jöfn frá byrjun og hart var barist. Í hálfleik var staðan 21-17 fyrir HP. HP náði mjög góðu forskoti en Hörður minnkaði muninn niður í 2 mörk, en komst ekki nær. Lokatölur urðu 37-31 fyrir HP.

Spilkaflar Harðar voru á köflum fínir og samleikur tveggja manna oft góður. Færslur í varnarleik og talningar í vörn voru nokkrum sinnum góðar, og markvarslan í seinni hluta seinni hálfleiks var frábær. Liðið þarf þó að fækka mistökum fyrir næsta leik og lengja góðu kaflana.

Mest er tekið út úr því að 15 ára og 16 ára leikmenn liðsins fengu dýrmæta reynslu gegn fullorðnum og fílhraustum mönnum. Þeir nýttu tækifærið ágætlega og stóðu sig heilt yfir vel, en geta bætt sig enn frekar í næstu leikjum.