31. okt. 2015
Hörður tapaði fyrir Val2 í Vodafone Höllinni, 43-26
Meistaraflokkur Harðar tapaði 43-26 fyrir Val2 í Vodafone Höllinni í kvöld, en staðan í hálfleik var 25-14 fyrir Val.
Meistaraflokkur Harðar mætti liði Vals2 í Vodafone Höllinni í kvöld. Í liði Vals2 voru margir reyndir og klókir leikmenn sem höfðu áralanga reynslu að baki í Úrvalsdeild. Í hálfleik var staðan 25-14 fyrir Val og lokatölur urðu 43-26.
Margt var þó mjög gott í leik strákanna og fengu allir að spreyta sig. Ungu leikmennirnir nýttu tækifærið vel, börðust og lögðu sig alla fram. Leikmenn 3. flokks skoruðu 8 mörk af 26 í leiknum.
Af leiknum er hægt að byggja mikið, og liðið og einstaklingar lögðu heilmikið inn í reynslubankann.