27. okt. 2015

Meistaraflokkur karla leikur tvo leiki í Reykjavík um helgina

Meistaraflokkur karla hjá Herði spilar sína fyrstu leiki í vetur um helgina í Reykjavík, gegn Val2 á föstudag og HP á laugardag.

Meistaraflokkur karla spilar sína fyrstu leiki í vetur næstkomandi helgi í Reykjavík. Tveir leikir verða á dagskrá hjá liðinu í ferðinni.

Föstudaginn 30. október kl. 20:30 mætir Hörður liði Vals2 í Vodafonehöllinni. Laugardaginn 31. október kl. 15:00 leikur Hörður gegn HP í Íþróttahúsinu Kórnum.

Nokkrir efnilegir leikmenn 3. flokks karla munu spila sína fyrstu meistaraflokksleiki um helgina. Félagið hvetur Ísfirðinga á höfuðborgarsvæðinu og stuðningsmenn Harðar þar til að mæta á leikina.