22. okt. 2015
Hörður tekur á móti Mílunni í fyrsta leik vetrarins
Meistaraflokkur karla leikur fyrsta heimaleik sinn og fyrsta leik vetrarins laugardaginn 24. október gegn Mílunni frá Selfossi.
Meistaraflokkur karla hjá Herði leikur sinn fyrsta heimaleik, og jafnframt fyrsta leik vetrarins, laugardaginn 24. október. Lið Mílunnar, sem kemur frá Selfossi, kemur í heimsókn.
Leikurinn hefst klukkan 18:30. Félagið hvetur alla til að mæta og styðja Hörð til sigurs.