14. okt. 2015

Leik Harðar og Aftureldingar í 3. flokki karla frestað

Leiknum við Aftureldingu í 3. flokki karla á Torfnesi á laugardaginn hefur verið frestað að beiðni Aftureldingar.

Leikur Harðar og Aftureldingar í 3. flokki karla átti að fara fram næstkomandi laugardag á heimavelli Harðar á Torfnesi. Honum hefur því miður verið frestað að beiðni Aftureldingar.

Unnið er að því að finna nýjan leiktíma.