6. okt. 2015
Handknattleiksdeild Harðar kynnti starfsemina í Grunnskóla Bolungarvíkur
Starfsemi deildarinnar var kynnt í Grunnskóla Bolungarvíkur og miðum með æfingatöflu útdeilt, og síðar um daginn mættu krakkar frá Bolungarvík til að prófa æfingar.
Í morgun var farið í Grunnskóla Bolungarvíkur þar sem starfsemi deildarinnar var kynnt og miðum með æfingatöflu útdeilt. Tekið var gríðarlega vel á móti fulltrúum deildarinnar og kaffið og meðlætið á kennarastofunni var afar gott.
Strax seinna um daginn mættu þónokkrir krakkar frá Bolungarvík til að prófa að æfa.
Eftir er að fara í grunnskólana á Flateyri, Súðavík, Þingeyri og Suðureyri, og verða þær heimsóknir farnar á allra næstu dögum.