5. okt. 2015

Margar nýjar stúlkur á æfingum eftir skólakynningu Harðar

Skólakynning Harðar í síðustu viku gaf góða raun og fjölmargar nýjar stúlkur hafa mætt á æfingar í stúlknaflokki, 6. og 5. flokki.

Skólakynning Harðar í síðustu viku gaf góða raun. Meðal annars hafa fjölmargar nýjar stúlkur prófað og mætt á æfingar í stúlknaflokki félagsins, 6. og 5. flokki. Félagið fagnar þessu mjög og segist hafa sama metnað fyrir stúlkunum sem æfa hjá því og fyrir strákunum.

Félagið minnir á að í vetur verða engin æfingagjöld. Allir nýir iðkendur sem byrja að æfa fá gefins glæsilegan keppnisbúning með númeri að eigin vali og nafni aftan á.