23. sep. 2015

Dómaranámskeið á Ísafirði á næstunni

Róbert Geir Gíslason, mótastjóri HSÍ, kemur til Ísafjarðar og stjórnar dómaranámskeiði fyrir iðkendur Harðar og aðra áhugasama um dómgæslu.

Dómaranámskeið er á döfinni hjá Herði. Róbert Geir Gíslason, mótastjóri HSÍ, er væntanlegur til Ísafjarðar á næstunni og mun stjórna námskeiðinu.

Námskeiðið er ætlað iðkendum Harðar og öðrum áhugasömum aðilum um dómgæslu. Hjá félaginu er alltaf þörf fyrir nýja og góða dómara.

Endanleg dagsetning námskeiðsins liggur ekki fyrir. Hún verður tilkynnt þegar hún er ákveðin.