11. ágú. 2015

Fjöruhreinsun á sunnudag og Akureyri æfir í Torfnesi

Handknattleiksdeild Harðar hreinsar fjöruna við Ísafjörð á sunnudaginn kl. 17 og úrvalsdeildarlið Akureyrar æfir í Torfnesi á fimmtudag og föstudag kl. 17.

Styttist í nýtt vetrarstarf og áður en það hefst tekur deildin og þeir sem að henni standa þátt í fjáröflun fyrir veturinn. Stefnt er að því að hreinsa fjöruna við Ísafjörð á sunnudaginn kl. 17. Allir sem tengjast handknattleiksdeildinni á einhvern hátt eru hvattir til að mæta og hjálpa til. Fjármunirnir sem skapast verða notaðir í rekstur og almenna lækkun á æfingagjöldum næsta vetur, en stefnt er að því að hafa þau í algjöru lágmarki.

Úrvalsdeildarlið Akureyrar kemur í heimsókn til Ísafjarðar í vikunni og æfir stíft á heimavelli Harðar í Torfnesi. Öllum er velkomið að fylgjast með æfingunum. Þjálfari Akureyrar er Sverre Andreas Jakobson, silfurdrengur og varnarjaxl. Með liðinu æfa einnig silfurdrengirnir Ingimundur Ingimundarson, varnarjaxl, og markvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson.

Iðkendur eru hvattir til að koma og horfa á æfingar liðsins í Torfnesi á fimmtudaginn kl. 17 og föstudaginn kl. 17.