18. nóv. 2022

Yngri flokkar Harðar safna fyrir keppnisferðum vetrarins

Yngri flokkar Harðar fjáröfla fyrir komandi vetur og bjóða til sölu Nike sokka, camelbak brúsa og vítamín sem hugmynd í jólapakkana.

Yngri flokkar Harðar eru duglegir að fara í keppnisferðir og eru nú að fjárafla fyrir komandi vetur. Í færslu félagsins segir að það sé mikil gæfa að eiga svo flotta yngri flokka.

Til sölu eru Nike sokkar, camelbak brúsar og vítamín, sem er bent á sem hugmynd í jólapakkana.

Þeir sem vilja styrkja krakkana geta skrifað athugasemd undir færsluna á samfélagsmiðlum félagsins.