30. okt. 2022

Hörður tekur á móti Aftureldingu í fjórða heimaleik tímabilsins

Fjórði heimaleikur Harðar á tímabilinu er gegn Aftureldingu og hefst klukkan 16:00, frítt er inn í boði Formáli ehf. og leikurinn verður sýndur á YouTube.

Í dag er komið að fjórða heimaleik tímabilsins hjá Herði þegar Handknattleiksdeild Aftureldingar kemur í heimsókn vestur. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er frítt inn í boði Formáli ehf.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta horft á hann frítt á YouTube rás Harðar. Þeir sem vilja styðja við útsendingarnar geta keypt einn kaffibolla á buymeacoffee.com/hordur og rennur allur sá peningur til yngri flokka félagsins.

Einnig keppir 4. flokkur gegn Aftureldingu í dag, klukkan 14:00, og sá leikur verður einnig sýndur á YouTube rás félagsins. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki grill á leikjunum í dag, en sjoppan og VIP rýmið verða á sínum stað. Hvatt er til þess að sem flestir mæti, líka á leik 4. flokks klukkan 14:00.