29. okt. 2022
4. flokkur karla mætir Fjölni / Fylki á Torfnesi kl. 16
4. flokkur karla hjá Herði spilar við Fjölni / Fylki á Torfnesi í dag kl. 16, ókeypis er inn og leikurinn er sýndur beint á HörðurTV.

4. flokkur karla spilar í dag við Fjölni / Fylki klukkan 16 á Torfnesi. Meistaraflokksmenn mæta og ræða við iðkendur. Kaffi og nammi verður til sölu í sjoppunni og fjölskyldustemmning verður allsráðandi. Allir eru velkomnir og eins og áður kostar ekki inn.
Leikurinn er í beinni útsendingu á HörðurTV og er streymt án endurgjalds fyrir þá sem komast ekki á völlinn. Foreldrar sem vilja fá leikinn í háskerpu-upptöku geta sent félaginu skilaboð á Facebook.
Liðið spilar jafnframt á morgun klukkan 14 við Aftureldingu.