22. okt. 2022
Hörður mætir Stjörnunni í TM Höllinni í dag klukkan 16:00
Strákarnir í Herði mæta Stjörnunni í TM Höllinni í Garðabæ í dag klukkan 16:00 og verður leikurinn sýndur á YouTube rás Stjörnunnar.

Það er leikdagur hjá Herði. Strákarnir mæta Stjörnunni í TM Höllinni í Garðabæ í dag og hefst leikurinn klukkan 16:00.
Harðverjar nær og fjær, sem geta gert sér leið upp í Garðabæ, eru hvattir til að mæta og styðja strákana.
Þeir sem komast ekki á leikinn geta horft á hann á YouTube rás Stjörnunnar, Stjarnan Handbolti TV.