19. okt. 2022
Hörður tapaði 32-35 fyrir Selfossi á heimavelli
Hörður tapaði 32-35 fyrir sterku liði Selfoss í gærkvöldi. Suguru Hikawa skoraði mest fyrir Hörð, 7 mörk, en Einar Sverrisson gerði 13 fyrir Selfoss.

Hörður tapaði 32-35 fyrir sterku liði Selfoss í leik gærkvöldsins. Markahæstir hjá Herði voru Suguru Hikawa með 7 mörk, Jón Ómar með 6 og Mikel Amilibia með 5.
Hjá Selfossi skoraði Einar Sverrisson 13 mörk og Guðmundur Hólmar 5, en aðrir skoruðu minna.
Mikel Amilibia var maður leiksins hjá Hermosa að þessu sinni og fær hann gjafapoka með glaðningi frá Hermosa.
Félagið þakkar öllum sem komu á leikinn og sjálfboðaliðunum sem gera heimaleikina að veruleika. Selfoss Handbolta er einnig þökkuð koman vestur og vonast er til að ferðin heim hafi verið góð.