13. okt. 2022
Fatasala Harðar er hafin með nýjum Hummel fatnaði
Handknattleiksdeild Harðar býður í ár upp á nýjan fatnað, Hummel peysur, og fyrsta pöntun verður send á sunnudagskvöld.

Fatasala Harðar er komin í gang og í ár er boðið upp á nýjan fatnað. Í boði er Hummel peysa sem er 1/4 rennd og heilrennd Hummel peysa sem er mjúk að innan.
Þeir sem vilja panta geta gert það í sjoppunni á leikjum hjá félaginu eða með skilaboðum. Fyrsta pöntun verður send á sunnudagskvöld.
Allur ágóði sölunnar rennur til Handknattleiksdeildar Harðar.