16. apr. 2015
SFS mótið – Vestfjarðamótið 2015 hefst á morgun
SFS mótið – Vestfjarðamótið 2015 hefst á morgun kl. 15 í Torfnesi og kl. 15.40 í Bolungarvík og um 350 keppendur taka þátt.
Á morgun hefst SFS mótið – Vestfjarðamótið 2015, sem er stærsti viðburður ársins í ísfirsku íþróttalífi hvað Hörð varðar. Mótið byrjar kl. 15 í Torfnesi og kl. 15.40 í Bolungarvík. Spilað er frá 15 til 20.40 á morgun, frá 8 til 20.40 á laugardag og frá 8 til 14 á sunnudag.
Um 350 keppendur taka þátt og eru lið frá öllu landinu mætt. Búast má við heilmiklu mannlífi í bænum um helgina. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og sjá framtíðarhandboltamenn landsins spila.
Heimafólki er einnig bent á flugeldasýningu kl. 22 á laugardagskvöldið.