9. apr. 2015

SFS mótið - Vestfjarðamótið 2015 haldið helgina 17.-19. apríl

Um 350 keppendur frá 18 félögum og 36 lið taka þátt í SFS mótinu - Vestfjarðamótinu 2015 í 5. flokki yngri (11-12 ára) dagana 17.-19. apríl.

SFS mótið - Vestfjarðamótið 2015 verður haldið helgina 17.-19. apríl. Væntanlegir eru 350 keppendur frá 18 félögum sem senda 36 lið til keppni um Íslandsmeistaratitilinn í 5. flokki yngri (11-12 ára). Keppt er bæði í Bolungarvík og á Ísafirði og verða reglulegar ferðir milli bæjanna á meðan á mótinu stendur.

Allir keppendur gista í menntaskólanum og grunnskólanum og eru í fullu fæði. Keppendum fylgir mikill fjöldi aðstandenda og er vitað að gistipláss er óðum að fyllast. Keppni hefst klukkan 15 á föstudegi og stendur fram á kvöld, en þá taka við bíó og fararstjórakvöld á Húsinu. Laugardagurinn endar á grillveislu, kvöldvöku og flugeldasýningu, og Benni Sig sér um kvöldvökuna.

Á sunnudeginum fara fram úrslit mótsins og halda allir til síns heima seinnipart dags. Foreldrar og aðrir forráðamenn eru hvattir til að koma við og leggja sitt af mörkum.