9. apr. 2015
Íslandsbanki áfram aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar
Skrifað var undir áframhaldandi samkomulag um að Íslandsbanki verði áfram aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar.

Í síðustu viku var skrifað undir áframhaldandi samkomulag við Íslandsbanka um að bankinn verði áfram aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar. Deildin er afskaplega þakklát bankanum fyrir að leggja til starfsins, en hann hefur stutt félagið dyggilega á undanförnum árum.
Áfram verða allir búningar félagsins merktir Íslandsbanka að framan, og allir krakkar sem æfa hjá félaginu fá áfram keppnisbúninga merkta Íslandsbanka þeim að kostnaðarlausu. Styrkur Íslandsbanki Ísafirði rennur óskertur til yngri flokka félagsins, en þeir hafa eflst verulega undanfarin ár.
Á myndinni sjást Grétar Eiríksson þjálfari, Gísli Jón Kristjánsson stjórnarmaður og Freygerður Ólafsdóttir og Hallgrímur Magnús Sigurjónsson frá Íslandsbanka.