27. mars 2015

Nóg um að vera hjá Harðverjum um helgina

Meistaraflokkur karla leikur við Val í undanúrslitum utandeildarinnar og 4. flokkur spilar tvo heimaleiki við Völsung á Torfnesi.

Meistaraflokkur spilar við Val í undanúrslitum utandeildarinnar kl. 21.30 í Fylkishöll. 4. flokkur spilar tvo heimaleiki við Völsung á Torfnesi, þann fyrri kl. 17 á laugardaginn og þann seinni kl. 11 á sunnudaginn.

Auk leikjanna eru æfingar í dag og á sunnudag.

Jón Ómar fer á æfingar hjá U15 í næstu viku. Gísli Jörgen, núverandi Valsari en uppalinn Harðverji, fer á æfingar hjá U16 í framhaldinu.