28. sep. 2022
Hörður semur við brasilísku leikmennina Guilherme og Zeca
Handknattleiksdeild Harðar býður velkomna brasilísku leikmennina Guilherme Carmignoli De Andrade, 21 árs skyttu, og Jose Esteves Lopes Neto, örvhentan leikmann í U23 landsliði Brasilíu.

Guilherme Carmignoli De Andrade er 21 árs brasilísk skytta sem er genginn til liðs við Hörð frá Nacional Handebol í Brasilíu. Hann spilar jafnt sem skytta vinstra megin og sem miðjumaður eða vinstri hornamaður eftir þörfum. Guilherme er fastamaður í brasilíska U21 landsliðinu og hefur einnig leikið með U23 landsliði Brasilíu. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning.
Jose Esteves Lopes Neto er örvhentur leikmaður í U23 landsliði Brasilíu. Hann leikur nú með Corinthians Guarulhos - VEGUS og lauk keppni með liðinu í gær. Liðið hafnaði í öðru sæti eftir tap í úrslitaleik gegn Nacional.
Hörður hlakkar til að sjá þá leika í Harðar treyjum í vetur.
