26. sep. 2022
Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos genginn til liðs við Hörð
Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos, 24 ára miðjumaður, er genginn til liðs við Hörð frá Sorocabo í Brasilíu.

Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos, 24 ára miðjumaður, er genginn til liðs við Hörð frá Sorocabo. Það gerðist eftir að félagið kláraði úrslitakeppnina síðustu daga í Brasilíu.
Jhonatan er sagður einstaklega lunkinn miðjumaður, eldfljótur og góður skotmaður. Félagið bindur vonir við að hann muni aðstoða strax í baráttunni í Olís deild karla.