23. sep. 2022

Forsala á bleikri treyju Harðar er hafin

Hörður gefur út bleika treyju í samstarfi við Bleiku slaufuna og Krabbameinsfélagið Sigurvon og rennur allur ágóði til þeirra.

Forsala er hafin á bleikri treyju sem Hörður gefur út í samstarfi við Bleiku slaufuna og Krabbameinsfélagið Sigurvon. Treyjan kostar 5.000kr.

Allur ágóði af sölunni rennur beint til Bleiku slaufunnar og Sigurvonar.

Hægt er að panta treyjur með því að senda félaginu skilaboð á Facebook eða á Instagram-aðgangi Harðar, hordurhand.